[Stikla, plakat] Ný stikla NAPÓLEÓNSSKJALANNA

Út er komin ný stikla úr kvikmyndinni Napóleonsskjölin eftir Óskar Þór Axelsson. Myndin verður frumsýnd í lok janúar á næsta ári.

„Áhorfendur hafa áður fengið örlítinn smjörþef af myndinni en nú er frumsýnd lengri stikla úr henni sem ætti að auka enn meira á spenninginn,“ segir í tilkynningu um stikluna.

Kvikmyndin er byggð á samnefndri bók eftir Arnald Indriðason sem var ein af hans fyrstu bókum. Handrit skrifar Marteinn Þórisson.

Segir á Vísi:

Myndin segir frá Kristínu, metnaðarfullum lögfræðingi sem dregst inn í óvænta atburðarás þegar bróðir hennar rambar fram á flugvélaflak úr seinni heimsstyrjöldinni uppi á Vatnajökli. Kristín og háskólaprófessorinn Simon Rush þurfa á öllu sínu að halda til þess að komast undan valdamiklum aðilum sem svífast einskis til þess að komast yfir leyndardóminn sem flugvélaflakið geymir.

Leikstjóri myndarinnar er Óskar Þór Axelsson en fyrri myndir hans eru Svartur á Leik og Ég man þig sem báðar nutu mikilla vinsælda.

Sagafilm framleiðir myndina í samstarfi við þýska fyrirtækið Splendid Films en Beta Cinema sér um alþjóðlega dreifingu sem hefur farið vel af stað. Með dreifingu innanlands fer Samfilm, dreifingarfyrirtæki Sambíóanna, en eins og fyrr segir verður myndin frumsýnd í lok janúar 2023.

Með aðalhlutverk fara Vivian Ólafsdóttir (Leynilögga), Jack Fox (Riviera), Iain Glen (Game of Thrones), Ólafur Darri Ólafsson, Adesuwa Oni (The Witcher), Annette Badland (Ted Lasso), Atli Óskar Fjalarsson og Þröstur Leó Gunnarsson.

HEIMILDVísir
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR