[Stikla] STORMUR, heimildaþáttaröð um faraldurinn á Íslandi, væntanleg um næstu áramót

Í heimildaþáttaröðinni Stormur er saga Covid-19 á Íslandi sögð út frá ýmsum hliðum með áherslu á mannlega þátt farsóttarinnar. Þáttaröðin er í sex hlutum og verður tekinn til sýningar í kringum komandi áramót á RÚV.

Fjallað er um verkið á vef RÚV:

Fyrsta stiklan úr heimildaþáttaröðinni Stormur sem fjallar um baráttuna við Covid á Íslandi hefur verið opinberuð. „Við byrjuðum í tökum á þáttunum í mars 2020 og höfum fylgt eftir fjölmörgum einstaklingum í gegnum þetta viðburðarríka og erfiða ár. Það sem stendur uppúr hjá mér er að hafa fengið tækifæri til að vera baksviðs og mynda atburðarrásina og fólkið sem hefur staðið í þessari ​baráttu frá byrjun. Þetta hefur verið magnað ferðalag og í stiklunni sem við frumsýnum í dag sjáum við örlítið brot af efninu,“ segir Jóhannes Kr. Kristjánsson sem vinnur að þáttunum ásamt Sævari Guðmundssyni leikstjóra.

„Framundan er mikil klippivinna því við erum að vinna með tæplega 300 tökudaga og sögurnar sem við náum utan um eru mjög sterkar. Þær eru af öllum stærðum og gerðum,“ segir leikstjórinn. „Dramatískar erfiðar sjúkrasögur, hasarinn í kringum þríeykið, fyndin eða skemmtileg uppátæki og gullfallegir persónulegir sigrar eru bara brot af þeim sögum sem við sýnum í þessum þáttum. Það sem gerir þetta sérsteklega áhugavert er að þetta er hlið faraldurisins sem fólk hefur aldrei fengið að sjá áður.“

Í þáttunum er meðal annars brugðið upp mynd af því sem gerðist baksviðs hjá þríeykinu, baráttu sjúklinga við að komast í gegnum veikindin með aðstoð ástvina og hjúkrunarfólks, álaginu á gjörgæslu- og Covid göngudeildum Landspítalans, smitrakningu á heimsvísu, rannsóknum Íslenskrar erfðagreiningar og hvernig fólk leysir stór og krefjandi verkefni í veiruóveðri sem gengur yfir allann heiminn og setti hann á hvolf.

„Þessi þáttaröð verður á allan hátt einstök enda mun hún hafa að geyma stórkostlega mikilvægar sögur, upplýsingar og heimildir um fordæmalausa tíma sem afar þýðingarmikið og hollt verður fyrir þjóðina að geta rifjað upp og rýnt í nauðsynlegu samhengi og úr hæfilegri fjarlægð þegar kemur að því hún verður sýnd á RÚV uppúr komandi áramótum,“ segir Skarphéðinn Guðmundsson dagskrárstjóri sjónvarps hjá RÚV.

HEIMILDruv.is
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR