HÁLFUR ÁLFUR og ER ÁST fá verðlaun á Skjaldborg

Jón Bjarki Magnússon og Kristín Andrea Þórðardóttir verðlaunahafar Skjaldborgar 2020 (mynd: Patrik Ontkovic ).

Hálfur álfur eftir Jón Bjarka Magnússon hlaut dómnefndarverðlaunin Ljóskastarann og Er ást eftir Kristínu Andreu Þórðardóttur fékk Einarinn, áhorfendaverðlaunin á nýafstaðinni Skjaldborgarhátíð sem að þessu sinni fór fram í Bíó Paradís.

Þrettán heimildamyndir voru frumsýndar á hátíðinni, sjö verk í vinnslu voru kynnt auk dagskrár í tengslum við heiðursgest hátíðarinnar Hrafnhildi Gunnarsdóttur.

Tvenn verðlaun eru veitt á Skjaldborg, áhorfendaverðlaunin Einarinnn og Ljóskastarinn, dómnefndarverðlaun. Af sóttvarnarástæðum afhenti dómnefnd bæði verðlaunin í ár.

Einarinn 2020 hlaut heimildamyndin Er ást eftir Kristínu Andreu Þórðardóttur sem er saga um sorgarferli Helenu Jónsdóttur eftir fráfall eiginmanns hennar Þorvaldar Þorsteinssonar. Í umsögn dómnefndar segir: “Höfundur nálgast viðkvæmt viðfangsefni af mikilli næmni og tekst að gera úr áhrifamikið verk. Einlæg og hjartnæm mynd um ástina sem minnir mann á að lifa í augnablikinu og vera þakklátur fyrir hvert andartak.” 

Heimildamyndin Hálfur álfur eftir Jón Bjarka Magnússon hlaut Ljóskastarann en myndina gerði Jón Bjarki um afa sinn á hundraðasta aldursári. Jón Bjarki veitti Ljóskastaranum viðtöku ásamt framleiðanda myndarinnar, Hlín Ólafsdóttur. Að mati dómnefndar er myndin sterk og heilsteypt saga, einlæg og tilgerðarlaus frásögn. Mynd sem hrífur mann með sér frá fyrstu mínútu og fær mann til að hlæja og gráta á víxl.

Dómnefndin samanstóð af leikstjóranum Uglu Hauksdóttur, Veru Illugadóttur, útvarpskonu, og Grími Hákonarsyni leikstjóra. 

Skjaldborg í ár var ekki með hefðbundnu sniði en hátíðin er samkvæmt hefðinni haldin um hvítasunnu á Patreksfirði. Í ár var hátíðinni frestað fram á verslunarmannahelgi en með dagsfyrirvara þurfti að blása hátíðina af sökum Covid-19.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR