Andlát | Gísli Rúnar Jónsson 1953-2020

Gísli Rúnar Jónsson (til vinstri) og Júlíus Brjánsson sem Kaffibrúsakarlarnir.

Gísli Rúnar Jónsson leikari, leikstjóri og handritshöfundur er látinn, 67 ára að aldri.

Gísli Rúnar varð þjóðkunnur sem annar Kaffibrúsakarlanna (ásamt Júlíusi Brjánssyni) í stuttum gamanatriðum í skemmtiþáttum í Sjónvarpinu haustið 1972. Næstu tvö árin skemmtu þeir félagar víðsvegar um land og hljómplata með efni þeirra kom út 1973 við miklar vinsældir. Kaffibrúsakarlarnir voru fyrsta gamantvíeykið í íslensku sjónvarpi og skipa þannig sérstakan sess, en um svipað leyti komu bræðurnir Halli og Laddi einnig fram, reyndar fyrst ári á undan sem raddir Gláms og Skráms í Stundinni okkar.

Nokkrum árum síðar gerðu Halli, Laddi og Gísli Rúnar grínplötuna Látum sem ekkert c (1976), sem óneitanlega hlýtur að teljast stór minnisvarði í íslensku gríni. Þar er meðal annars að finna lagið Tygg-Igg-Úmmí.

Sjálfur gerði hann plötuna Algjör Sveppur sama ár og 1977 var hann meðal fjölda listamanna sem kom að hljómplötunni Blessað stríðið sem gerði syni mína ríka. 1980 kom út platan Úllen Dúllen Doff þar sem finna mátti úrval efnis úr samnefndum skemmtiþáttum Útvarpsins. Auk Gísla Rúnars komu þar fram Randver Þorláksson, Jónas Jónasson, Sigurður Sigurjónsson, Árni Tryggvason og Hanna María Karlsdóttir auk Eddu Björgvinsdóttur, en þau Gísli Rúnar kynntust í leiklistarskóla á áttunda áratuginum og giftu sig síðar. Þau eignuðust tvö börn, Björgvin Franz og Róbert Óliver. Þau skildu árið 2000.

Gísli Rúnar kom að fjölda Áramótaskaupa, ýmist sem leikari, handritshöfundur eða leikstjóri, allt frá 1981 til 1994. Þá skrifaði hann handrit og leikstýrði nokkrum gamanþáttaröðum. Fastir liðir eins og venjulega voru sýndir 1985 í Sjónvarpinu og ári síðar Heilsubælið í Gervahverfi sem var fyrsta gamanþáttaröð Stöðvar 2. Hann fór einnig með aðalhlutverk í þeim þáttum. Bæði verkin slógu hressilega í gegn. Áður hafði hann leikið aðalhlutverk í þáttunum Þættir úr Félagsheimili (1982, RÚV). Hann var einnig meðal handritshöfunda gamanþáttanna Búbbarnir, sem sýndir voru á Stöð 2, 2006.

Gísli Rúnar kom fram í mörgum kvikmyndum, má þar nefna Hvíta máva (1985), Stellu í orlofi (1986), Stuttan Frakka (1993), Blossa (1997), Magnús (1989) og Stellu í framboði (2002). Síðasta hlutverk hans á þeim vettvangi var í Ömmu Hófí sem frumsýnd var í júlí 2020.

Hér er hann ásamt Sigurði Sigurjónssyni í Stellu í orlofi:

Gísli Rúnar átti einnig langan feril í leikhúsi, sem leikari, leikstjóri, leikskáld og þýðandi. Þá skrifaði hann ævisögu Björgvins Halldórssonar, Bó & Co, sem kom út 2001 og nokkru síðar bókina Ég drepst þar sem mér sýnist þar sem hann tíndi til skrautlegar gamansögur frá löngum ferli sínum.

Árið 1996 birti Morgunblaðið viðtal við Gísla Rúnar í tilefni þess að þá voru að hefjast sýningar á spjallþáttum hans Gott kvöld með Gísla Rúnari á Stöð 2. Í viðtalinu fer Gísli yfir ævi sína og störf.

Gísli Rúnar Jónsson fæddist 20. mars 1953 og lést 28. júlí 2020.

Klapptré sendir fjölskyldu og öðrum aðstandendum innilegar samúðarkveðjur.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR