[Stikla] ÞRIÐJI PÓLLINN opnunarmynd RIFF 2020

Rammi úr Þriðja pólnum.

Heimildamyndin Þriðji póllinn eftir Andra Snæ Magnason og Anní Ólafsdóttur verður opnunarmynd RIFF í ár. Myndin verður frumsýnd í Háskólabíói 24. september þegar hátíðin verður sett í sautjánda sinn. Sena dreifir myndinni sem verður tekin til almennra sýninga eftir frumsýningu.

Þriðji póllinn lýsir ferðalagi þeirra Högna Egilssonar tónlistarmanns og Önnu Töru Edwards í Nepal. Hún veitir innsýn í hugsun og veruleika tveggja einstaklinga sem hafa glímt við geðhvörf. Þetta er mynd um óvænta vináttu og hreinskilin og opin umræða um hvað það þýðir að vera með geðsjúkdóm og að vera aðstandandi.

Anna Tara er íslensk kona sem ólst upp í frumskógum Nepals innan um tígrisdýr og nashyrninga. Hún veiktist af geðhvörfum upp úr tvítugu og missti móður sína úr sama sjúkdómi. 

Þegar Högni steig fram með sín veikindi ákvað Anna Tara að feta sömu leið, eftir að hafa lifað í skugga veikindanna um árabil, og skora skömmina á hólm. Hún ákvað þá að efna til tónleika til vitundarvakningar um geðsjúkdóma í Kathmandu, höfuðborg Nepals og fékk Högna til að spila á tónleikunum. Fyrir ágóðann var síðan opnuð hjálparlína fyrir fólk í sjálfsvígshugleiðingum í Nepal.

Þriðji póllinn er fyrsta mynd Anníar Ólafsdóttur í fullri lengd en Andri Snær Magnason hefur áður leikstýrt Draumalandinu ásamt Þorfinni Guðnasyni, sem er aðsóknarmesta heimildamynd Íslandssögunnar. Eva Lind Höskuldsdóttir, Davíð Alexander Corno og Anní Ólafsdóttir klipptu myndina, Anní og Eiríkur Ingi Böðvarsson sáu um kvikmyndatöku, hljóðvinnsla var í höndum Huldars Freys Arnarsonar og litgreining í höndum Trickshot. 

Framleiðendur myndarinnar eru Andri Snær Magnason, Hlín Jóhannesdóttir, Halldóra Þorláksdóttir og Sigurður Gísli Pálmason. Samstarf hefur verið við Geðhjálp, Landlæknisembættið og Píeta, samtök gegn sjálfsvígum.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR