Útskriftarmynd Helenu Rakel fær CILECT viðurkenningu

Útskriftarmynd Helenu Rakel frá Kvikmyndaskóla Íslands, Bland í poka, var í gær valin 17. besta myndin af 118 í árlegri stuttmyndasamkeppni CILECT, alheimssamtaka kvikmyndaskóla.

Þetta mun vera næstbesti árangur skólans frá upphafi. Árið 2018 hafnaði útskriftarmyndin 3 menn í 14. sæti og árið 2016 hafnaði myndin Himinn og jörð í 20.sæti.

Helena hafði þetta að segja um niðurstöðuna:

“Seint hélt ég að ég yrði mjög ánægð með að lenda í 17 sæti í einhverju en miðað við samkeppnina í cilect keppninni þá held ég geti talað fyrir okkur öll  sem standa á bak við Bland Í Poka og sagt að við séum ótrúlega stolt og ánægð með þennan árangur og svo innilega þakklát öllum þeim sem komu að gerð myndarinnar. “  

Friðrik Þór Friðriksson, rektor Kvikmyndaskólans, hafði þetta að segja um niðurstöðuna:

„Þetta eru sannarlega gleðifréttir að sjá okkur standa svona vel að vígi í keppni með bestu skólum heims og  staðfesting á þeirri uppbyggingu sem hefur átt sér stað undanfarinn ár hjá skólanum.“

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR