Net­flix fjármagnar ís­lenska þáttaröð Baltasars

Svona er stefnt að því að kvikmyndaþorpið líti út að utan. (Mynd: RVK Studios)

Baltasar Kormákur sagði frá því í Kastljósi RÚV í gærkvöldi að Netflix myndi fjármagna íslenska þáttaröð á hans vegum og að tökur hefjist næsta vor í Gufunesi.

Vísir fjallar um málið og fer yfir það sem Baltasar ræddi í viðtalinu:

Bandaríska streymisveitan Netflix hefur pantað vísindaskáldsöguþáttaröð af Baltasar Kormáki og framleiðslufyrirtæki hans. Um íslenska framleiðslu verður að ræða með íslenskum leikurum. Baltasar telur að þetta sé líklega stærsti einstaki samningur sem gerður hefur verið við íslenska kvikmyndagerðarmenn.

Þetta kom fram í Kastljósi í kvöld þar sem Baltasar Kormákur ræddi viðskiptin við Netflix og hið nýja kvikmyndaþorp sem nú rís í Gufunesi. Baltasar Kormákur þakkar einmmitt hinu nýju kvikmyndaþorpi það að Netflix hafi áhuga á að framleiða þáttaröðina á Íslandi, en einnig er kvikmynd í bígerð sem Baltasar mun framleiða fyrir Netflix.

„Það er búið að panta frá okkur seríu sem er efni sem er skrifað fyrir Ísland, á Íslandi og gerist á Íslandi. Netflix ætlar að fullfjármagna þessa seríu, fyrir utan endurgreiðslu iðnaðarráðuneytisins,“ sagði Baltasar Kormákur í Kastljósi.

„Þannig að þetta er bara með ólíkindum. Þetta gerist mjög hratt. Þetta er sennilega stærsti staki díllinn sem hefur verið gerður fyrir íslenska kvikmyndagerð,“ sagði Baltasar.

Um væri að ræða átta þátta seríu sem framleidd yrði af Íslendingum, á íslensku með íslenskum leikurum. Ef vel gengur er líklegt að fleiri þáttaraðir verðir framleiddar. Verið er að ráða inn tökulið og leikara en tökur eiga að hefjast í apríl á næsta ári. Reiknað er með að þáttaröðin fari í sýningar á fyrsta ársfjórðungi 2021.

Annað verkefni er einnig í bígerð fyrir Netflix.

„Svo var ég beðinn um að framleiða hérna á Íslandi og í stúdíóinu mínu, semsagt mynd fyrir Netflix, og það er mjög stór alþjóðleg stjarna sem er í aðalhlutverki þar. Ég er ekki að fara að leikstýra, ég er bara að fara að framleiða,“ sagði Baltasar.

Í viðtalinu kom hann inn á hið nýja kvikmyndaþorp sem fyrirtæki hans byggir nú í Gufunesi í húsnæði gömlu Áburðarverksmiðjunnar. Um er að ræða eitt stærsta kvikmyndaver Evrópu. Vonir voru bundnar við að það myndi laða að sér stór erlend verkefni, sem virðist nú vera að gerast.

Í það minnsta er Baltasar sannfærður um að kvikmyndaverið hafi leikið lykilhlutverk í því að landa samningunum við Netflix.

„Þetta gerir þetta mögulegt.“

Horfa má á viðtalið á vef RÚV.

Sjá nánar hér: Net­flix pantar ís­lenska vísinda­skáld­sögu­þátta­röð af Baltasar Kormáki sem þakkar nýja kvik­mynda­þorpinu – Vísir

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR