69 alþjóðleg verðlaun til íslenskra kvikmynda 2018

Úr Andið eðlilega.

Íslenskar kvikmyndir hlutu alls 69 alþjóðleg verðlaun á árinu 2018. Hæst bera verðlaun verðlaun til Ísoldar Uggadóttur á Sundance hátíðinni fyrir bestu leikstjórn myndar af erlendum uppruna (Andið eðlilega) og Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs til handa kvikmyndinni Kona fer í stríð eftir Benedikt Erlingsson ásamt SACD verðlaununum í Cannes fyrir sömu mynd. Þá verður einnig að nefna Vetrarbræður eftir Hlyn Pálmason sem hlaut bæði dönsku Robert (alls 9 verðlaun) og Bodil verðlaunin (2) á síðasta ári.

Verðlaunin voru 79 árið 2017 og 71 árið 2016. 2015 voru verðlaun alls 102, 2014 voru þau 34 og 33 2013.

Alls fengu 8 bíómyndir, 3 heimildamyndir og 3 stuttmyndir verðlaun 2018. Andið eðlilega fékk flest verðlaun eða 10 talsins.

Verðlaun til íslenskra kvikmynda á árinu (miðað er við alþjóðlegar hátíðir, óháð staðsetningu)

Sjá má allar fréttir um verðlaun til íslenskra kvikmynda hér (hvar, hvenær, hverskonar verðlaun).

Hér að neðan er að finna samantekt á verðlaununum. 

BÍÓMYNDIR:

Andið eðlilega (Leikstjóri: Ísold Uggadóttir )

Sundance Film Festival. Utah, Bandaríkin, 18. – 28. janúar. Ísold Uggadóttirvalin besti erlendi leikstjórinn.
Kvikmyndahátíðin í Gautaborg. Svíþjóð, 26. janúar – 5. febrúar. Vann til FIPRESCI verðlaunanna.
Provincetown Film Festival. Massachusetts, Bandaríkin, 13.-17. júní.  Hlaut HBO áhorfendaverðlaun fyrir bestu leiknu kvikmynd.
Traverse City Film Festival. Michigan, Bandaríkin, 31. júlí – 5. ágúst. Ísold Uggadóttir vann til verðlauna fyrir bestu frumraun leikstjóra.
Faroe Islands Minority Film Festival. Þórshöfn, Færeyjar, 30. ágúst – 2. september. Var valin besta myndin.
Queer Lisboa. Lissabon, Portúgal, 14. – 22. september. Kristín Þóra Haraldsdóttir, aðalleikkona myndarinnar, var valin besta leikkonan.
Queer Screen Film Festival. Sydney, Ástralía, 18. – 23. september. Vann áhorfendaverðlaun.
Athens International Film Festival. Grikkland, 19. – 30. september. Vann áhorfendaverðlaun.
Hamptons International Film Festival. New York, Bandaríkin, 4. – 8. október. Hlaut Brizzolara Family Foundation verðlaunin.
Noordelijk Film Festival. Leeuwarden, Holland, 8. – 12. nóvember. Vann verðlaun fyrir sérstakt framlag til norrænna kvikmynda.

Kona fer í stríð (Leikstjóri: Benedikt Erlingsson)

International Critics’ Week -Cannes. Cannes, Frakklandi, 9.-17. maí. Vann fern verðlaun; SACD verðlaunin fyrir besta handrit (Benedikt Erlingsson og Ólafur Egilsson), Gyllta lestarteininn, áhorfendaverðlaun Valbonne og skólaverðlaun kennara og nema.
Filmfest Hamburg. Þýskaland, 27. september – 6. október. Vann Art Cinema verðlaunin.
Byron Bay International Film Festival. Ástralía, 12. – 21. október. Vann tvenn verðlaun; fyrir bestu kvikmynd og besta dramað.
Valladolid International Film Festival. Spánn, 20. – 27. október. Vann verðlaun fyrir bestu leikkonu (Halldóra Geirharðsdóttir).
Nordic Film Days Lübeck. Þýskaland, 30. október – 4. nóvember. Vann fern verðlaun; aðalverðlaun fyrir bestu kvikmynd, áhorfendaverðlaun, Interfilm kirkju verðlaun og verðlaun frá baltneskri dómnefnd.
Nordic Council Film Prize. 2018. Vann kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs.
LUX verðlaun Evrópuþingsins. Strassburg, Frakkland, 14. nóvember. Fyrsta sinn sem íslensk kvikmynd vinnur LUX verðlaun Evrópuþingsins.
Ljubljana International Film Festival. Slóvenía, 7. – 18. nóvember. Vann Kingfisher verðlaunin.

Sumarbörn (Leikstjóri: Guðrún Ragnarssdóttir)

FIFEM – alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Montreal, Kanada, 3. – 11. mars. Vann INIS verðlaunin.
International Film Festival – In The Family, Yaroslavl, Rússland, júlí. Vann áhorfendaverðlaunin.
Nordic Film Days Lübeck. Þýskaland, 30. október – 4. nóvember. Vann barna- og unglingaverðlaunin.

Svanurinn (Leikstjóri: Ása Helga Hjörleifsdóttir) – vann einnig til verðlauna árið 2017

Santa Barbara Film Festival. Bandaríkin, 31. janúar – 5. febrúar. Vann sérstök dómnefndarverðlaun.
Skip City International D – Cinema Festival. Japan, 13. – 22. júlí. Hlaut sérstaka viðurkenningu dómnefndar (e. special mention).
Napoli Film Festival. Ítalía, 24. september – 1. október. Vann til dreifingarverðlauna sem tryggja myndinni dreifingu um alla Ítalíu.

Undir trénu (leikstjóri: Hafsteinn Gunnar Sigurðsson) – vann einnig til verðlauna árið 2017

Skip City International D – Cinema Festival. Japan, 13. – 22. júlí. Hafsteinn Gunnar hlaut leikstjórnar verðlaun.

Vetrarbræður (Leikstjóri: Hlynur Pálmason) – vann einnig til verðlauna árið 2017

Robert verðlaun á verðlaunaafhendingu Dönsku kvikmyndaakademíunnar. 5. febrúar. Myndin hlaut flest allra Robert verðlauna í ár, samtals 9 verðlaun. Myndin var valin besta myndin og Hlynur var valinn besti leikstjórinn. Auk þess að vinna fyrir bestu mynd og besta leikstjóra vann myndin Robert verðlaun fyrir besta leikara í aðalhlutverki (Elliott Crosset Hove), bestu leikkonu í aukahlutverki (Victoria Carmen Sonne), bestu kvikmyndatöku (Maria von Hausswolff), bestu leikmynd (Gustav Pontoppidan), bestu búninga (Nina Grønlund), bestu förðun (Katrine Tersgov) og bestu hljóðhönnun (Lars Halvorsen).
Bodil verðlaunin. Kaupmannahöfn 17. mars. Vann verðlaun fyrir bestu mynd ársins auk þess sem kvikmyndataka Maria Von Hausswolf hlaut verðlaun fyrir kvikmyndatöku.
Transilvania International Film Festival. Cluj-Napoca, Rúmenía, 25. maí – 3. júní. Hlynur Pálmason var valinn besti leikstjórinn.
Kyiv Molodist International Film Festival. Kænugarður, Úkranía,  27. maí – 3. júní. Var valin besta kvikmyndin.
Arctic Open. Arkhangelsk, Rússland, 6. – 9. desember. Hlaut verðlaun fyrir bestu kvikmyndatökuna í flokknum The Arctic as it is
Aðalverðlaun dómnefndar Angers Premiers Plans 2018, Frakklandi
Aðalverðlaun dómnefndar Annonay International Film Festival 2018, Frakklandi
Besta mynd og besti leikari Vilnius International Film Festival 2018, Litháen
Sérstök viðurkenning FEST – New Directors, New Cinema 2018, Portúgal

Víti í Vestmannaeyjum  (Leikstjóri: Bragi Þór Hinriksson)

SCHLINGEL International Children’s Film Festival. Þýskaland, 1. – 7. október. Vann tvenn verðlaun; Chemnitz verðlaun alþjóðlegrar dómnefndar hátíðarinnar og sérstök dómnefndarverðlaun barnadómnefndar hátíðarinnar.
Chicago International Film Festival. Bandaríkin, 10. – 21. október. Vann verðlaun fyrir bestu mynd í fullri lengd að mati barnadómnefndar.
Ale Kino International Young Audience Film Festival. Pólland, 2. – 9. desember. Vann The Football Goats verðlaunin.
SIFFCY Film Festival for Children & Youth. Indland, 10. – 16. desember. Bragi Þór Hinriksson hlaut verðlaun sem besti leikstjórinn.

Lói – þú flýgur aldrei einn (Leikstjóri: Árni Ólafur Ásgeirsson)

Aðalverðlaun Alþjóðlegu barnamyndahátíðarinnar í Kristiansand í Noregi

STUTTMYNDIR:

Búi (Leikstjóri: Inga Lísa Middleton)

KUKI International Short Film Festival for Children and Youth. Berlín, Þýskaland, 18. – 25. nóvember. Hlaut sérstaka viðurkenningu barnadómnefndar.

Frelsun (Leikstjóri: Þóra Hilmarsdóttir)

Unnur Ösp Stefánsdóttir, aðalleikkona stuttmyndarinnar var valin besta leikkonan á Budapest Short Film Festival (Busho) í september.

Cut (Leikstjóri: Eva Sigurðardóttir)

Verðlaun fyrir bestu leikstjórn (Honourable Mention) á Queen Palm Film Festival í Kalíforníu. Myndin var einnig valin besta stuttmyndin í flokki erlendra mynda.
Aðalverðlaun stuttmyndahátíðarinnar Excuse My French í París

Ungar (Leikstjóri: Nanna Kristín Magnúsdóttir)

Besta myndin á Ennesimo Film Festival á Ítalíu í maí.

HEIMILDAMYNDIR:

In Touch (Leikstjóri: Pawel Ziemilski)

IDFA. Amsterdam, 14. – 25. nóvember. Vann sérstök dómnefndarverðlaun í aðalkeppni IDFA.

Mirgorod, í leit að vatnssopa (Leikstjóri: Einar Þór Gunnlaugsson)

Verðlaun fyrir bestu leikstjórn heimildamyndar á Global India International Film Festival í mars.

UseLess (Leikstjórar: Rakel Garðarsdóttir og Ágústa M. Ólafsdóttir)

Hlaut silfurverðlaun í flokknum Fight and adaption to climate change frá  Deauvill Green Award 
Hlaut sérstaka viðurkenningu frá EcoAct .
International Green Film Festival . Kraká, Pólland, 18. – 20. Var valin besta myndin,
DOC LA . Los Angeles, 18. – 21. október. Vann verðlaun fyrir bestu myndina í umhverfisflokki.
NYCTV Festival. Bandaríkin, 2. – 3. nóvember. Var valin besta heimildamyndin.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR