Aðsókn | „Adrift“ í öðru sæti eftir opnunarhelgina, „Kona fer í stríð“ komin yfir tíu þúsund gesti

Sam Claflin og Shailene Woodley í Adrift.

Adrift Baltasars Kormáks var frumsýnd í íslenskum kvikmyndahúsum um síðustu helgi og er i öðru sæti aðsóknarlistans með rúmlega 4 þúsund gesti. Kona fer í stríð eftir Benedikt Erlingsson hefur nú fengið um 10,600 gesti eftir fjórðu sýningarhelgi.

2,060 sáu Adrift um helgina, en alls 4,149 með forsýningum.

10,593 hafa nú séð Kona fer í stríð eftir fjórar helgar. Myndin er í fjórða sæti aðsóknarlistans.

Vargur er í tíunda sæti sæti eftir 7 vikur. Alls hafa 6,212 nú séð myndina.

Víti í Vestmannaeyjum er í 15. sæti eftir 13. sýningarhelgi. Alls hefur hún fengið 35,432 gesti.

Lói er í 14. sæti eftir 20. sýningarhelgi en alls hafa 23,970 séð myndina hingað til.

Aðsókn á íslenskar myndir 11.-17. júní 2018

VIKURMYNDAÐSÓKNHEILDAR-
AÐSÓKN
STAÐA HEILDAR-
AÐSÓKNAR Í SÍÐUSTU VIKU
Adrift2,060 4,149 (með forsýningum)-
4Kona fer í stríð-10,593 -
7Vargur-6,212 -
20Lói - þú flýgur aldrei einn-23,970 -
13Víti í Vestmannaeyjum-35,432-
(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR