Aðsókn | „Fullir vasar“ opnar með tæplega fjögur þúsund gesti

Fullir vasar eftir Anton Sigurðsson fékk tæplega fjögur þúsund gesti á opunarhelginni og er í öðru sæti. Lói – þú flýgur aldrei einn hefur nú fengið yfir sextán þúsund gesti eftir fjórðu sýningarhelgi.

2,210 sáu Fulla vasa um helgina en alls 3,802 með forsýningum.

Lói er í þriðja sæti en hún fékk 3,354 gesti í vikunni. Alls hafa 16,453 séð myndina hingað til.

Svanurinn er í 19. sæti eftir 8. sýningarhelgi. Alls hafa 3,933 séð hana.

Aðsókn á íslenskar myndir 19.-25. feb. 2018

VIKURMYNDAÐSÓKNHEILDAR-
AÐSÓKN
STAÐA HEILDAR-
AÐSÓKNAR Í SÍÐUSTU VIKU
4Lói - þú flýgur aldrei einn3,35416,453 13,099
Fullir vasar2,2103,802-
8Svanurinn124 3,9333,809
(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR