Ása Helga Hjörleifsdóttir er í viðtali við Fréttablaðið um mynd sína Svaninn, en sýningar á henni hefjast á morgun.
Brot úr viðtalinu:
„Myndin byrjaði sem skólaverkefni þegar ég var í kvikmyndanámi í New York í Columbia-háskóla. Þá var ég í áfanga sem hét kvikmyndaaðlögun og snerist um að laga bækur að bíómyndum. Þessi bók, Svanurinn, eftir Guðberg Bergsson varð fyrir valinu hjá mér, ég hafði lesið hana nokkrum árum áður og algerlega kolfallið fyrir henni. Án þess að ég fattaði það þá var eitthvað við lesturinn á þessari bók sem byrjaði að láta mig hugsa myndrænt, hugsa í kvikmyndagerð. Fljótlega varð mér líka ljóst að myndin yrði meira en skólaverkefni. Þetta var 2010 og margt hefur gerst í millitíðinni því ferlið er búið að vera langt.“
Hvernig gekk svo að selja hugmyndina, útvega fjármagn og fá aðra til liðs? „Það var erfitt í fyrstu en fljótlega fékk ég þær Hlín Jóhannesdóttur og Birgittu Björnsdóttur í fyrirtækinu Vintage pictures sem framleiðendur. Það skipti sköpum. En margar hindranir hafa verið á leiðinni því þó fólk hafi haft trú á verkefninu skynjuðum við líka hræðslu við söguna. Hún er öll svo huglæg og gerist að miklu leyti inni í höfðinu á aðalpersónunni sem er níu ára stelpa, margir efuðust um að þetta gæti orðið að spennandi myndefni. Það merkilega er að núna, þegar ég sýni myndina á kvikmyndahátíðum, er þetta takmarkaða en um leið skapandi sjónarhorn stelpunnar eitt af því sem heillar fólk mest.“
[…]„Svanurinn er að einhverju leyti mynd um það sem við lærum öll þegar við erum að vaxa úr grasi, að til þess að geta fúnkerað í samfélagi fullorðinna þurfum við setja upp grímu sem þróast og breytist með okkur sjálfum gegnum árin. Það er sársaukafullt en á köflum líka nauðsynlegt til að lifa af,“ segir Ása Helga og bætir við: „Það er kannski ekki algjör tilviljun að aðalleikona myndarinnar heitir Gríma!“
Sjá nánar hér: visir.is
Klapptré hefur fylgst með vinnslu þessa verks allt frá 2014. Smelltu hér til að skoða allar færslur um Svaninn.