Teikinimyndin Lói – þú flýgur aldrei einn verður kynnt kaupendum í Cannes nú í vikunni. ARRI Media International, sem annast sölu myndarinnar á heimsvísu, hefur tilkynnt um þrjár sölur nú á hátíðinni og hefur þá myndin verið seld til um 60 landa.
Variety greinir frá. Myndin verður frumsýnd á Íslandi í desember næstkomandi. Hér að neðan má sjá stuttan bút úr myndinni.
Sjá nánar hér: ARRI Closes New Deals on Animated Film ‘Ploey’ (EXCLUSIVE) | Variety