Aðsókn | „Grimmd“ nálgast 15 þúsund gesti, „Eiðurinn“ með tæplega 40 þúsund

grimmd2Grimmd Antons Sigurðssonar er í tíunda sæti aðsóknarlista FRÍSK eftir fjórðu sýningarhelgi og hefur fengið tæplega fimmtán þúsund gesti. Eiðurinn Baltasars Kormáks nálgast 40 þúsund gesti eftir tíu vikur. Tvær nýjar heimildamyndir, Aumingja Ísland og Svarta gengið voru frumsýndar um helgina.

289 manns sáu Grimmd um helgina en alls 3,388 í vikunni. Heildargestafjöldi nemur því nú 14,822 gestum.

222 sáu heimildamynd Kára Schram, Svarta gengið, sem frumsýnd var í Bíó Paradís um helgina.

Önnur heimildamynd, Aumingja Ísland eftir Ara Alexander, var einnig frumsýnd í Bíó Paradís um helgina. Myndin hefur fengið 223 gesti.

Eiðurinn Baltasars Kormáks er í 13. sæti aðsóknarlistans. Alls sáu hana 234 manns yfir vikuna. Samtals hafa því 39,086 séð myndina eftir 10 vikur.

Child Eater Erlings Óttars Thoroddsen er sýnd í Bíó Paradís. 94 sáu myndina í vikunni og heildarfjöldi gesta er 504 eftir þriðju sýningarhelgi.

1,900 gestir hafa nú séð Innsæi eftir Hrund Gunnsteinsdóttur og Kristinu Ólafsdóttur eftir fimmtu sýningarhelgi.

606 hafa séð Ransacked eftir Pétur Einarsson að lokinni fjórðu sýningarhelgi.

Aðsókn á íslenskar myndir 7.-13. nóvember 2016

VIKURMYNDAÐSÓKNHEILDARAÐSÓKN
4Grimmd3,38814,822
10Eiðurinn23439,086
Aumingja Ísland223223
Svarta gengið222222
5Innsæi2071,900
3Child Eater94504
5Ransacked28606
(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR