„InnSæi“ sýnd í New York, frumsýnd á Íslandi 6. október

Kristín Ólafsdóttir og Hrund Gunnsteinsdóttir, höfundar InnSæis, sitja fyrir svörum í New York.
Kristín Ólafsdóttir og Hrund Gunnsteinsdóttir, höfundar InnSæis, sitja fyrir svörum í New York.

Heimildamyndin InnSæi – the Sea within var sýnd í Rubin Museum á Manhattan í New York um helgina við góðar undirtektir. Íslandsfrumsýning myndarinnar verður á RIFF þann 6. október og mun hún síðan fara í almennar sýningar.

Stjórnendur myndarinnar, Kristín Ólafsdóttir og Hrund Gunnsteinsdóttir, voru viðstaddar og sátu fyrir svörum eftir sýningu.

“Við erum að sjálfsögðu virkilega ánægðar með viðtökunar í New York. Umræðurnar eftir sýninguna gefa málefninu enn meiri dýpt. Það er skemmtilegt að segja frá því hvað við finnum fyrir miklum áhuga á Íslandi í gegnum myndina, þetta er því ákveðin landkynning líka,”

segir Kristín Ólafsdóttir annar stjórnandi og framleiðandi myndarinnar.

InnSæi verður sýnd á San Diego Film Festival þann 2. október n.k. og svo á Awareness Film Festival í Los Angeles þann 16. október. Myndin var heimsfrumsýnd í Berlín í júní síðastliðnum og nú hafa um 23.000 manns séð myndina samkvæmt upplýsingum frá framleiðendum.

Myndinni er svo lýst:

Heimurinn er breytast hraðar en nokkru sinni fyrr og nýjir tímar kalla á nýja hugsun. Nýjir tímar kalla á breytt hugarfar og meðvitaða skynjun. InnSæi býður áhorfendum í ferðalag inn í hulinn heim innra með hverju og einu okkar sem lætur engan ósnortinn.

65% af skólakrökkum í dag eiga eftir að vinna störf í framtíðinni sem hafa ekki verið fundin upp. Talið er að þunglyndi verði ein helsta orsök örorku og veikinda árið 2020. Kulnun í starfi, upplýsingaáreiti og ofbeldi eru orðinn daglegur hluti af menningu okkar, afþreyingarefni og fjölmiðlaumfjöllun, á meðan að ósnortin náttúra er orðin að fjarlægum draumi fyrir fólk víða um heim. Hvernig hafa þessir þættir áhrif á líf okkar? Á ferðalagi leikstjóranna Kristínar og Hrundar, fylgjast þær með skólabörnum í Bretlandi sem er kennt með hjálp taugalíffræði og núvitundar að takast á við aukið upplýsingaflæði, streitu og auknar kröfur sem gerðar eru til þeirra. Reynsla barnanna sýnir þeim að InnSæi er lykillinn að þeim sköpunarkrafti sem við þurfum á að halda til að einbeita okkur, dafna og takast á við nútímasamfélag.

Í myndinni koma fram heimsþekktir leiðtogar og hugsuðir á sviði lista, vísinda og fræða sem leiða okkur inn í margræðan heim InnSæis: Heim endalausra möguleika, sjálfsþekkingar, samkenndar og ímyndunarafls. – Veröld sem við erum að missa tengingu við í hraða og áreiti nútímasamfélagsins.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR