Stikla úr „Grimmd“ komin út

Margrét Vilhjálmsdóttir fer með annað aðalhlutverkið í Grimmd eftir Anton Sigurðsson.
Margrét Vilhjálmsdóttir fer með annað aðalhlutverkið í Grimmd eftir Anton Sigurðsson.

Stikla kvikmyndarinnar Grimmd eftir Anton Sigurðsson var opinberuð í dag. Myndin verður frumsýnd þann 21. október.

Með aðalhlutverk fara þau Margrét Vilhjálmsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson. Í öðrum helstu hlutverkum eru Helgi Björnsson, Júlíana Sara Gunnarsdóttir, Hannes Óli Ágústsson, Salóme Gunnarsdóttir, Atli Rafn Sigurðarson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Pétur Sigurðsson og Hilmir Snær Guðnason.

Myndin segir frá því þegar tvær ungar stelpur hverfa sporlaust af leikvelli í Árbænum. Stúlkurnar finnast látnar í Heiðmörk og í einbeittri rannsókn í leit að sökudólgum fléttast saman nokkrar sögur þegar hræðileg atriði í máli stúlknanna koma upp á yfirborðið. Þjóðfélagið fer á annan endann vegna málsins og reyndustu rannsóknarlögreglumenn landsins, þau Edda Davíðsdóttir (Margrét Vilhjálmsdóttir) og Jóhannes Schram (Sveinn Ólafur Gunnarsson) eru kölluð til. Þau eru bæði staðráðin í að leysa málið en þurfa að etja kappi við tímann þegar hvimleið atvik úr fortíðinni líta dagsins ljós og erfið rannsóknin flækist enn frekar.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR