Sovésk „sveitalögga“ á botni Faxaflóa

Erlendur Sveinsson forstöðumaður Kvikmyndasafnsins með kvikmyndina sem heimt var úr undirdjúpunum í þurrkun.
Erlendur Sveinsson forstöðumaður Kvikmyndasafnsins með kvikmyndina sem heimt var úr undirdjúpunum í þurrkun.

Filmur sem fundust á botni Faxaflóa fyrr í þessum mánuði eru úr sovéskri bíómynd frá árinu 1968. Starfsmenn Kvikmyndasafns Íslands hafa þurrkað filmurnar og skoðað þær síðustu daga. RÚV greinir frá.

Í frétt RÚV um málið segir m.a.:

Þann 2. júlí fengu skipverjar á humarskipinu Fróða filmur í trollið. Filmunum var komið til Kvikmyndasafns Íslands, sem rannsakaði þær nánar, eins og fréttastofa hefur greint frá. Grunur lék að myndirnar væru úr bandaríska herskipinu Alexander Hamilton, sem fórst á Faxaflóa árið 1942.

Þurrkuðu filmurnar og færðu á klippiborð

Erlendur Sveinsson, forstöðumaður safnsins, hefur síðustu daga undið ofan af filmunum og þurrkað þær, enda sjóblautar eftir áratuga veru á hafsbotni. Því næst voru þær vafðar upp á kjarna og færðar á klippiborð til skoðunar.

„Ég sá strax að ég myndi geta náð römmum út úr henni. Og veiddi út nokkra ramma á ljósmyndavél og gekk frá þeim síðan á Facebook síðu okkar. Og ég var svona að vona að einhver myndi reka augun í þetta,“ segir Erlendur.

Upp úr krafsinu kom sovésk mynd

Þá var ákveðið að skanna tvær spólur sem tekist hafði að þurrka og horfa á þær.

„Sem mér fannst náttúrulega með gríðarlegum ólíkindum. Að við værum komnir með kvikmyndir frá hafsbotni í land og það er búið að þurrka þær og koma þær í skanna og við værum að horfa á þær og skoða,“ segir Erlendur. Þegar rýnt var í myndina sáu Erlendur og félagar að um sovéska mynd væri að ræða.

„En hversu gömul hún var og það allt saman, það var náttúrulega óljóst.“

Sveitalögga frá kaldastríðsárunum

Í dag leystist gátan. Myndin er ekki frá því úr síðari heimsstyrjöld, heldur frá árinu 1968 – í miðju kalda stríðinu.

Það var Mikhail Timofeev sem benti á þetta á Facebook-síðu Kvikmyndasafnsins í dag. Timofeev er búsettur á Íslandi en hann sá myndina sem barn. Myndin heitir Derevenskij detekviv,“ eða Sveitalöggan og er frá árinu 1968 og fjallar um lögreglufulltrúann Aniskin og störf hans í litlu sveitaþorpi.

Filmufundurinn vakið mikla athygli

Fundur skipsverjanna á Fróða hefur vakið nokkra athygli. Rússneska sendiráðið sendi Kvikmyndasafninu í Moskvu fyrirspurn um myndina og Alþjóða kvikmyndasafnasambandið bauðst til að senda dreifibréf til allra 162 meðlima sambandsins, í þeirri von að finna út úr því um hvaða mynd væri að ræða.

Það er þó á reiki hvað myndin var að gera á botni Faxaflóa en henni gæti hafa verið kastað útbyrðis úr sovésku skipi einhvern tímann á áttunda áratugnum.

Sjá nánar hér: Sovésk „sveitalögga“ á botni Faxaflóa | RÚV

Að neðan er svo fyrri hluti stuttrar myndar sem Kvikmyndasafnið vann um kvikmyndarfundinn.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR