Heimildamyndin Andlit norðursins eftir Magnús Viðar Sigurðsson, sem fjallar um Ragnar Axelsson ljósmyndara og feril hans, fékk aðalverðlaunin á kvikmyndahátíð í Úkraínu, Poltava Film Festival.
Kvikmyndahátíðin er ný íslensk-úkraínsk hátíð í borginni Poltava og stendur Einar Þór Gunnlaugsson kvikmyndagerðarmaður að henni ásamt Úkraínumönnum. Sýndar voru sjö gamlar og nýjar íslenskar kvikmyndir og nokkrar úkraínskar.