Ólafur Darri Ólafsson segir í viðtali við útvarpsþáttinn Today á BBC að vinsældir Ófærðar í Bretlandi hafi komið skemmtilega á óvart. „Maður gerir eitthvað og vonar að það takist vel til og að áhorfendum líki það. Það kemur manni svo alltaf skemmtilega á óvart þegar fólk virðist bara hafa mjög gaman af,“ segir Ólafur Darri.
Leikarinn er einnig er í forsíðuviðtali við helgarblað The Times, the Saturday Review, undir fyrirsögninni. „Stór. Loðinn. Talar íslensku. Nýjasta kyntáknið í sjónvarpi.“ (The Times hefur aðgangslæsingu að vef sínum þannig að aðgengi er takmarkað).
Ófærð hefur fengið sérlega fín viðbrögð í Bretlandi eins og Klapptré hefur áður skýrt frá hér, hér og hér. Vefurinn Nordic Noir and Beyond hefur tekið saman ummæli fjölmargra gagnrýnenda um þættina þegar þeir fóru af stað á BBC 4 og má skoða þau hér.
Þáttaröðin kemur út á DVD og Blu-ray þann 11. apríl næstkomandi í Bretlandi.