Greining | „Afinn“ kominn með tíu þúsund gesti

Sigurður Sigurjónsson og Sigrún Edda Björnsdóttir í Afanum.
Sigurður Sigurjónsson og Sigrún Edda Björnsdóttir í Afanum.

Afinn er áfram í öðru sætinu eftir þriðju sýningarhelgi. Alls hafa 9.995 manns séð myndina frá upphafi, þar af 1.371 um helgina og alls 3.815 síðastliðna viku.

París norðursins er nú í 12. sæti aðsóknarlistans eftir sex vikur í sýningum. Alls hafa 10.957 gestir séð myndina hingað til, en þar af komu 279 gestir um helgina og alls 557 í vikunni.

Vonarstræti er nú í 22. sæti á lista SMÁÍS eftir 22 vikur í sýningum. Alls sáu myndina 261 manns s.l. viku, þar af 55 um síðustu helgi. Samtals hefur myndin fengið 47.753 gesti frá því sýningar hófust.

AÐSÓKN VIKUNA 6.-13. okt. 2014:

VIKURMYNDAÐSÓKNHEILDARAÐSÓKN
3Afinn3.8159.995
6París norðursins557 10.957
22Vonarstræti26147.753
(Heimild: SMÁÍS)

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR