HeimGagnrýniScreen hrósar "París norðursins" í hástert á Karlovy Vary

Screen hrósar „París norðursins“ í hástert á Karlovy Vary

-

Björn Thors í París norðursins.
Björn Thors í París norðursins.

Mark Adams hjá Screen skrifar um París norðursins eftir Hafstein Gunnar Sigurðsson sem heimsfrumsýnd var í gærkvöldi á Karlovy Vary kvikmyndahátíðinni í Tékklandi. Adams er hæstánægður með myndina og segir hana koma sterklega til greina í verðlaunasæti á hátíðinni.

Adams segir meðal annars:

Einstaklega meinfyndið íslenskt gamandrama. Mynd Hafsteins Gunnars, sem er bráðskemmtileg á að horfa, dvelur við bresti í samböndum fólks, sérstaklega karla. Hafsteinn er einn af efnilegustu leikstjórum sem nú eru að koma upp í Evrópu, hann hefur hér smíðað afhjúpandi, gamansama og greindarlega kvikmynd sem ber að hylla.

Sjá nánar hér: Paris Of The North | Reviews | Screen.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

ÞAÐ NÝJASTA Á KLAPPTRÉ

Fáðu nýjasta efnið á Klapptré í pósthólfið þitt tvisvar í viku, á mánudögum og fimmtudögum.

Þú getur afskráð þig hvenær sem er.

NÝJUSTU FÆRSLUR