![Bragi Þór Hinriksson, Alfreð Ásberg Árnason og Sverrir Þór Sverrisson skrifa undir samning um gerð fjórðu Sveppamyndarinnar.](https://i0.wp.com/klapptre.is/wp-content/uploads/2014/07/Bragi-Þór-Hinriksson-Alfreð-Ásberg-Árnason-og-Sverrir-Þór-Sverrisson-skrifa-undir-samning-Sveppi-4.jpg?resize=540%2C378&ssl=1)
Fjórða Sveppamyndin verður frumsýnd í Sambíóunum í október næstkomandi. Tökur hefjast 21. júlí og eru sömu aðalleikarar og í flestum fyrri myndum um ævintýri Sveppa, þ.e. Sverrir Þór Sverrisson, Guðjón Davíð Karlsson og Vilhelm Anton Jónsson.
Myndin mun bera heitið Algjör Sveppi og Gói bjarga málunum og verður söguþráðurinn á þá leið „að illmennið sem áhorfendur muna eftir í fyrstu mynd þeirra félaga stefnir á landsyfirráð að nýju og þurfa félagarnir að leggja sitt af mörkum svo ekki fari illa fyrir landsmönnum og fróni,“ eins og segir í tilkynningu.
Sambíóin taka myndina til sýninga og var samningur þessa efnis undirritaður í höfuðstöðvum dreifingarfyrirtækisins á dögunum. Leikstjórn verður sem fyrr í höndum Braga Þórs Hinrikssonar sem ásamt Sverri Þór Sverrissyni skrifar handritið.
Sjá nánar hér: Sveppi og Gói ætla að bjarga málunum – mbl.is.