Vonarstræti fer vel af stað og situr í toppsæti aðsóknarlistans eftir helgina, en alls sáu þá myndina 5.717 manns. Með forsýningum hefur myndin fengið 7.671 gest. Til að setja þetta í samhengi er frumsýningarhelgin á pari við sömu helgi kvikmyndarinnar Stella í framboði (2002) sem þá fékk 7.647 gesti. Opnunin á Vonarstræti er þannig á lista yfir topp tíu stærstu opnunarhelgar íslenskrar myndar frá því mælingar hófust 1995.
11.862 hafa nú séð Harry og Heimi: Morð eru til alls fyrst en myndin hefur nú verið sex vikur í sýningum. Myndin ernú í 9. sæti aðsóknarlistans.
Hross í oss gengur enn í Bíó Paradís og hefur nú alls fengið til sín 14.874 gesti eftir 38 vikur í sýningum.
[tble caption=“Aðsókn á íslenskar myndir helgina 16.-18. maí 2014″ width=“500″ colwidth=“20|100|50|50″ colalign=“center|centre|center|center“] VIKUR,MYND,AÐSÓKN,HEILDARAÐSÓKNNý,Vonarstræti,5.717,7.671
6,Harry og Heimir: Morð eru til alls fyrst,154,11.862
[/tble](Heimild: SMÁÍS)