spot_img

“Ísland got talent” slær í gegn

Ísland_got_talentÍsland got talent nýtur mikillar hylli en samkvæmt rafrænum áhorfsmælingum horfðu rúm 71% áskrifenda Stöðvar 2 á aldrinum 12-54 ára á fyrsta þáttinn sem sendur var út 26. janúar s.l.

Á Vísi er haft eftir Frey Einarssyni sjónvarpsstjóra Stöðvar 2 að þetta sé “langmesta áhorf sem þáttur á Stöð 2 hefur fengið frá upphafi rafrænna mælinga í markhópnum 12-54 ára. Meira en Vaktaseríurnar fengu fyrir fimm árum sem er áhorf sem margir töldu að yrði aldrei toppað. Það er auðvitað sætur sigur í sjálfu sér.”

Þrettán þættir af Ísland got talent verða sýndir, þar af eru fjórir úrslitaþættir sem verða í beinni útsendingu í vor.

Freyr Einarsson sjónvarpsstjóri Stöðvar 2.
Freyr Einarsson sjónvarpsstjóri Stöðvar 2.

Aukin áhersla á innlenda dagskrá

Áhersla Stöðvar 2 á innlenda dagskrá hefur aukist mjög í vetur. Freyr segir í því sambandi að ljóst sé að mikil eftirspurn ríki eftir íslensku efni. “Það varð sprenging í áskriftarsölunni hjá okkur í desember og það má segja að látunum hafi ekki linnt og allar símalínur í söluverinu hafi verið rauðglóandi síðustu mánuði. Stemningin í kringum Ísland Got Talent er einstök og viðbrögðin frábær, enda er þetta fjölskylduþáttur sem allar kynslóðir sameinast í kringum.”

Þátturinn er framleiddur af Rvk. Studios.

Sjá nánar hér: Vísir – Mesta áhorf frá upphafi.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR