![Frá afhendingu 14. Edduverðlaunanna í Hörpu í febrúar 2013.](https://i0.wp.com/klapptre.is/wp-content/uploads/2014/01/edduverðlaunin-í-hörpu-2013.jpg?resize=300%2C168&ssl=1)
Eddan, uppskeruhátíð Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar, verður haldin með pompi og prakt í Hörpunni laugardaginn 22. febrúar og sýnd beint í opinni dagskrá Stöðvar 2.
Frestur framleiðenda til að senda inn kvikmynda- og sjónvarpsverk vegna verðlaunaafhendingarinnar rennur út á miðnætti mánudaginn 6. janúar. Innsendingarferlið er að fullu rafrænt og gjaldgeng eru verk sem voru frumsýnd opinberlega á tímabilinu 1. janúar 2013 til 31. desember 2013. Tilkynnt verður um tilnefningar til Edduverðlaunanna 30. janúar og mun kosning Akademíumeðlima á milli tilnefndra verka hefjast samdægurs.
Þetta er í fimmtánda sinn sem Eddan er haldin en hún fór fyrst fram árið 1999 þegar veitt voru 10 verðlaun. Verðlaunin eru nú veitt í 24 flokkum sem spanna allt svið kvikmynda- og sjónvarpsgeirans.