SUMARLJÓS komin yfir þrjú þúsund gesti

Sumarljós og svo kemur nóttin fékk 658 gesti í vikunni.

Heildaraðsókn alls nemur aðsókn 3,030 gestum eftir fjórðu helgi. Myndin er áfram í fimmta sæti.

Abbababb! er í sjöunda sæti aðsóknarlistans. 267 sáu myndina í vikunni, en myndin hefur nú alls fengið 11,578 gesti eftir áttundu helgi.

Háðsheimildamyndin Band var frumsýnd á föstudag. 254 sáu hana um helgina. Hún er í 16. sæti.

Svar við bréfi Helgu er 14. sæti eftir tíundu helgi. 135 sáu myndina í vikunni, en heildarfjöldi nemur nú 9,478 gestum.

Svartur á leik (2012), er í sýningum vegna 10 ára afmælis. Myndin fékk 201 gest í vikunni og nemur heildaraðsókn því 66,324 gestum. Hún er í 18. sæti aðsóknarlistans.

Aðsókn á íslenskar myndir 31. okt.-6. nóv. 2022

VIKUR MYND AÐSÓKN (SÍÐAST) ALLS (SÍÐAST)
4 Sumarljós og svo kemur nóttin 658 (777) 3,030 (2,372)
8 Abbababb! 267 (431) 11,578 (11,311)
Band 254 (helgin) 254
5 Svartur á leik (endursýnd) 201 (430) 66,324 (66,123)
10 Svar við bréfi Helgu 135 (191) 9,478 (9,343)

(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR