Á MÓTI STRAUMNUM sýnd í kvikmyndahúsum vestanhafs

Heimildamyndin Á móti straumnum eftir Óskar Pál Sveinsson verður frumsýnd í dag í kvikmyndahúsum í New York og Los Angeles í Bandaríkjunum.

Greint er frá þessu á Vísi:

Myndin segir frá lífshlaupi Veigu Grétarsdóttur, kynleiðréttingu og ótrúlegu ferðalagi hennar á kajak í kringum Ísland, en hún er fyrsta manneskjan í heiminum til að róa á kajak 2.100 km í kringum um landið rangsælis, á móti straumnum.

Á móti straumnum var frumsýnd á RIFF (Reykjavik International Film Festival) í október 2020 og sýnd á Stöð 2 í lok síðasta árs. Hún er tilnefnd til tveggja Edduverðlauna 2021, í flokkunum heimildamynd ársins og hljóð ársins. Myndin er framleidd af Klikk Productions og Pétri Einarssyni en hið virta Zeitgeist Films, sem hefur áratuga reynslu af dreifingu alþjóðlegra verðlaunamynda, hefur tryggt sér rétt á sýningum í N-Ameríku.

Klikk Productions var stofnað árið 2002 af Kristínu Ólafsdóttur leikstjóra og framleiðanda og hefur það að markmiði að framleiða myndir tengdar mannúðarmálum, einkum sem snúa að réttindum barna og kvenna. Á meðal mynda má nefna Innsæi, Town of Runners, og Sólskinsdrenginn sem hlotið hafa fjölda tilnefninga og verðlauna.

„Við erum innilega glöð og ánægð með þann áhuga og viðtökur sem Á móti straumnum hefur fengið. Erum við ekki síður stolt af að myndin verði frumsýnd í kvikmyndahúsum, en það er fremur sjaldgæft að heimildarmyndir komist á hvíta tjaldið vestan hafs. Það sýnir okkur kannski best hve vel Óskari Páli og teyminu öllu tókst að fanga þessa mikilvægu sögu og ferðalag Veigu, sem á svo mikið erindi og fór fram við hreint ótrúlegar aðstæður“ segir Kristín Ólafsdóttir.

Það er skammt stórra högga á milli hjá Kristínu og hennar samstarfsfólki því sunnudaginn 27. júní verður heimildamyndin Rebel Hearts, sem einnig er framleidd af Klikk, frumsýnd á Discovery+. Er henni leikstýrt af Pedro Kos og fjallar um baráttu sem nunnur kaþólsku reglunnar Sisters of the Immaculate Heart í Los Angeles hófu gegn feðraveldi kaþólsku kirkjunnar fyrir 50 árum og stendur en. Myndin hefur hlotið mikla athygli, tilnefningar og verðlaun, meðal annars á Sundance kvikmyndahátíðinni í janúar á þessu ári.

„Segja má að það sé mikið framundan hjá okkur hjá Klikk Productions, Á móti straumnum frumsýnd í Bandaríkjunum á morgun, Rebel Hearts á Discovery+ á sunnudaginn og í haust frumsýnum við stuttmyndina Footsteps On The Wind. Er hún byggð á laginu Inshallah eftir tónlistarmanninn Sting og fjallar um flóttamenn og er sögð frá sjónarhóli barna á flótta.“

HEIMILDVísir
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR