Þáttaröðin Systrabönd er tilnefnd til Nordisk Film og TV Fond handritsverðlaunanna á kvikmyndahátíðinni í Gautaborg sem hefst í lok janúar. Þáttaröðin keppir þar um besta handrit í flokki dramasjónvarpsþáttaraða á Norðurlöndunum.
Jóhann Ævar Grímsson á hugmyndina að þáttaröðinni en auk hans skrifuðu handritin Björg Magnúsdóttir, Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir og Silja Hauksdóttir, en Silja er jafnframt leikstjóri þáttanna.
Á tíunda áratug síðust aldar hverfur fjórtán ára stúlka sporlaust á Snæfellsnesi. Tuttugu og fimm árum síðar finnast jarðneskar leifar hennar og þrjár æskuvinkonur neyðast til að horfa í augu við fortíð sína.
Þáttaröðin er framleidd af Sagafilm fyrir Sjónvarp Símans og Viaplay á Norðurlöndum í samstarfi við Sky Studios á Bretlandi. Gautaborgarhátíðin er stærsta kvikmyndahátíðin á Norðurlöndum og stendur frá 29. janúar til 8. febrúar 2021.
Meðal þáttaraða sem keppa við Systrabönd eru danska þáttaröðin Ulven kommer, norska serían Velkommen til Utmark sem Dagur Kári leikstýrir, sænska serían Thin Blue Line og að lokum finnska þáttaröðin Cargo.
Þættirnir verða sýndir í Sjónvarpi Símans Premium um páskana á næsta ári og fara þættirnir í kjölfarið í sýningar á Norðurlöndunum og í alheimsdreifingu á vegum NBC Universal Global Distribution.
Framleiðendur þáttanna eru Tinna Proppé, Hilmar Sigurðsson og Kjartan Þór Þórðarson og eru þættirnir framleiddir með styrk frá Kvikmyndamiðstöð Íslands, Media Creative Europe og nýtur framleiðslan 25% endurgreiðslu úr ríkissjóði af framleiðslukostnaði.