Andlát | Árni Páll Jóhannsson 1950-2020

Árni Páll Jóhannsson (mynd: Daníel Magnússon).

Árni Páll Jóhannsson myndlistarmaður og leikmyndahönnuður er látinn eftir langvinn veikindi, 69 ára að aldri. Árni Páll var einn af lykilmönnum í íslenskri kvikmyndagerð allt frá kvikmyndavorstímanum.

Árni Páll nam ljósmyndun hjá Guðmundi Erlendssyni á öndverðum áttunda áratuginum og tók meistarapróf í greininni en hugur hans stóð til myndlistar. Hann hreifst af konseptlistinni sem þá var áberandi og gegnum kynni sín af Jóni Gunnari Árnasyni, myndhöggvara og einum af meðlimum SÚM-hópsins, komst hann í kynni við ýmsa af hinum SÚM-listamönnunum: Sigurð Guðmundsson, Hrein Friðfinnsson, Kristján Guðmundsson og fleiri. 1975 hóf Árni Páll kennslu við Myndlista- og handíðaskólann þar sem hann starfaði í meira en áratug og sama ár hélt hann sína fyrstu einkasýningu, í húsnæði hópsins við Vatnsstíg. Myndlistarrýnirinn Jón Proppé skrifaði yfirlitsgrein um myndlistarferil Árna Páls í tilefni sýningar hans í Gallerý Gamma 2017 og má lesa hana hér.

Árni Páll tók þátt í starfi Gallerýs Suðurgötu 7 á áttunda áratuginum og þar kynntist hann Friðrik Þór Friðrikssyni, sem þá var að hefja kvikmyndaferil sinn. Hann tók þátt í Rokk í Reykjavík (1982) sem ljósmyndari og tökumaður og sá einnig um leikmynd í tveimur myndum Þráins Bertelssonar, Löggulíf (1985, ásamt Halli Helgasyni) og Skammdegi (1985). Hann sá um leikmynd og brellur í fyrstu bíómynd Friðriks Þórs, Skytturnar (1987) og gerði eftir það leikmyndir í kvikmyndum Friðriks, allt frá Börnum náttúrunnar (1991) til Mömmu Gógó (2010). Stærsta verkefni hans af myndum Friðriks Þórs var hönnun og smíði braggahverfisins fyrir Djöflaeyjuna (1996). Ítarlega umfjöllun Morgunblaðsins um gerð myndarinnar má lesa hér.

Árni Páll gerði einnig leikmynd fyrir fjölda annarra kvikmynda, þeirra á meðal voru Karlakórinn Hekla (1992), Myrkrahöfðinginn (1999), 101 Reykjavík (2000), No Such Thing (2001), Bjólfskviða (2005), Köld slóð (2006) og Duggholufólkið (2007). Alls kom hann að leikmyndahönnun yfir 20 kvikmynda, sem nemur um 10% af öllum leiknum myndum sem gerðar hafa verið á Íslandi frá upphafi. Um leið skapaði hann fjölmörgum öðrum vettvang til að rækta hæfileika sína á þessu sviði og því er framlag hans til íslenskrar kvikmyndagerðar afar stórt.

Hann hlaut Edduverðlaunin 2007 fyrir leikmynd sína í Köld slóð eftir Björn B. Björnsson. Sama ár hlaut hann einnig heiðursverðlaun Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar. Þá hlaut hann aftur Edduna 2010 fyrir leikmyndina í Mamma Gógó Friðriks Þórs. Árið 2017 var kynntur til leiks nýr verðlaunagripur Eddunnar sem hann hannaði.

Árni Páll fæddist 13. október 1950. Hann lést þann 23. júlí 2020. Klapptré vottar aðstandendum hans innilega samúð.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR