Listaháskólinn býður til samtals um kvikmyndanám á háskólastigi

Listaháskóli Íslands býður til samtals um kvikmyndanám á háskólastigi þriðjudaginn 5. nóvember kl. 14 í húsakynnum LHÍ í Laugarnesi. Stefnumótið er liður í undirbúningi að stofnun kvikmyndadeildar við Listaháskólann og er þróað í samtali við hagaðila. Unnið er í samráði við fagvettvanginn í kvikmyndagerð og menntun.

Allir sem hafa áhuga á kvikmyndagerð og menntun geta skráð sig til leiks hér.

Dagskráin verður sem hér segir:

14:00-15:30: Stutt erindi um kvikmyndanám. Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor LHÍ / Karólína Stefánsdóttir, verkefnastjóri LHÍ / Katherine Dieckmann, handritshöfundur og leikstjóri við Columbia University School of the Arts / Mette Damgaard-Sørensen listrænn stjórnandi New Danish Screen, DFI / Ben Gibson, skólastjóri DFFB í Berlín / Ása Helga Hjörleifsdóttir, leikstjóri og handritshöfundur.

15:30-16:00 Kaffi

16:00-17:30 Borðavinna – umræður um kvikmyndanám á háskólastigi.

Þetta er þróunarverkefni styrkt af Mennta- og menningarmálaráðuneytinu.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR