„Hvítur, hvítur dagur“ Hlyns Pálmasonar valin á Critics’ Week í Cannes

 

Rammi úr Hvítum, hvítum degi eftir Hlyn Pálmason (Mynd: Join Motion Pictures).

Hvítur, hvítur dagur nýjasta kvikmynd leikstjórans og handritshöfundarins Hlyns Pálmasonar, er í hópi þeirra sjö mynda sem valdar hafa verið í keppni á Critics‘ Week, hliðardagskrá Cannes hátíðarinnar. Þetta er annað árið í röð sem íslensk kvikmynd er valin í Critics’ Week, en í fyrra hlaut Kona fer í stríð fern verðlaun í þeim flokki. Cannes hátíðin fer fram dagana 15.-23. maí.

Hvítur, hvítur dagur segir frá Ingimundi lögreglustjóra sem hefur verið í starfsleyfi frá því að eiginkona hans lést óvænt af slysförum. Í sorginni einbeitir hann sér að því að byggja hús fyrir dóttur sína og afastelpu, þar til athygli hans beinist að manni sem hann grunar að hafi átt í ástarsambandi við konu sína. Fljótlega breytist grunur Ingimundar í þráhyggju og leiðir hann til róttækra gjörða sem óhjákvæmilega bitnar einnig á þeim sem standa honum næst. Þetta er saga um sorg, hefnd og skilyrðislausa ást.

Tökur á myndinni fóru fram á Hornafirði, Stöðvarfirði, Fáskrúðsfirði og í Oddskarði.

Hlynur Pálmason leikstýrir og skrifar handritið að Hvítum, hvítum degi. Framleiðandi myndarinnar er Anton Máni Svansson fyrir Join Motion Pictures og einn af yfirframleiðendum er Guðmundur Arnar Guðmundsson, en myndin er íslensk/dönsk/sænsk samframleiðsla. Meðframleiðendur eru Katrin Pors, Mikkel Jersin og Eva Jakobsen fyrir Snowglobe, Nima Yousefi fyrir Hobab og Anthony Muir fyrir Film i Väst.

Með aðalhlutverk fara Ingvar E. Sigurðsson og Ída Mekkín Hlynsdóttir. Stjórn kvikmyndatöku er í höndum Mariu von Hausswolff og Julius Krebs Damsbo sér um klippingu myndarinnar. Hljóðhönnuður myndarinnar er Lars Halvorsen, leikmyndahönnuður Hulda Helgadóttir og tónlist er eftir Edmund Finnis.

Með sölu og dreifingu erlendis fer New Europe Film Sales, sem meðal annars hefur dreift Hrútum, Undir trénu og Vetrarbræðrum.

Hvítur, hvítur dagur er önnur kvikmynd Hlyns Pálmasonar í fullri lengd á eftir hinni dönsku/íslensku Vetrarbræðrum sem kom út árið 2017 og fór sigurför um heiminn í kjölfar heimsfrumsýningar í aðalkeppni Locarno kvikmyndahátíðarinnar í Sviss í ágúst 2017. Myndin hefur unnið til um tuttugu alþjóðlegra verðlauna, auk níu Robert verðlauna (dömnsku kvikmyndaverðlaunanna) og tvenn Bodil verðlaun (gagnrýnendaverðlaun) í Danmörku. Hlynur Pálmason vann einnig til Dreyer verðlaunanna á síðasta ári fyrir framúrskarandi listræna hæfni.

Tvær íslenskar myndir hafa áður tekið þátt í Critics’ Week, í fyrra var þar Kona fer í stríð eftir Benedikt Erlingsson og Ingaló eftir Ásdísi Thoroddsen tók þátt árið 1992; einnig hafa tvær myndir með íslenska tengingu tekið þátt, hin norsk/íslenska Vandræðamaðurinn eftir Jens Lien árið 2006; og fransk/íslenska stuttmyndin Víkingar eftir Magali Magistry árið 2013.

Critics‘ Week var stofnuð árið 1961 af samtökum franskra kvikmyndagagnrýnenda. Á meðal þekktra leikstjóra sem hafa sýnt myndir sínar í Critics’ Week eru t.a.m. Wong Kar-wai, Bernardo Bertolucci, Gaspar Noé og núverandi forseti dómnefndar í aðalkeppni Cannes, Alejandro González Iñárritu.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR