Adrift Baltasars Kormáks er með um ellefu þúsund og fimm hundruð gesti eftir fimmtu sýningarhelgi. Kona fer í stríð eftir Benedikt Erlingsson með um fjórtán þúsund og fimm hundruð gesti eftir áttundu sýningarhelgi.
619 sáu Adrift í vikunni, en alls hafa 11,556 séð hana eftir fimmtu sýningarhelgi. Myndin er í 11. sæti.
599 sáu Kona fer í stríð í vikunni. Alls hafa nú 14,522 séð hana eftir átta helgar. Myndin er áfram í áttunda sæti aðsóknarlistans.
Andið eðlilega hefur alls fengið 6,511 gesti eftir 19 vikur.
Vargur er í 21. sæti sæti eftir 11 vikur. Alls hafa 6,305 nú séð myndina.
Lói er í 20. sæti eftir 24. sýningarhelgi en alls hafa 24,160 séð myndina hingað til.
Aðsókn á íslenskar myndir 9.-15. júlí 2018
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDAR- AÐSÓKN | STAÐA HEILDAR- AÐSÓKNAR Í SÍÐUSTU VIKU |
---|---|---|---|---|
5 | Adrift | 619 | 11,556 | 10,937 |
8 | Kona fer í stríð | 599 | 14,522 | 13,923 |
19 | Andið eðlilega | 43 | 6,511 | 6,468 |
24 | Lói - þú flýgur aldrei einn | 33 | 24,160 | 24,127 |
11 | Vargur | 6 | 6,305 | 6,299 |