Aðsókn | „Adrift“ nálgast ellefu þúsund gesti eftir fjórar vikur, „Kona fer í stríð“ með um fjórtán þúsund eftir sjö

Sam Claflin og Shailene Woodley í Adrift.

Adrift Baltasars Kormáks er með tæpa ellefu þúsund gesti eftir fjórðu sýningarhelgi . Kona fer í stríð eftir Benedikt Erlingsson með tæpa fjórtán þúsund gesti eftir sjöundu sýningarhelgi.

1,254 sáu Adrift í vikunni, en alls hafa 10,937 séð hana eftir fjórðu sýningarhelgi. Myndin er í níunda sæti.

755 sáu Kona fer í stríð í vikunni. Alls hafa nú 13,923 séð hana eftir sjö helgar. Myndin er áfram í áttunda sæti aðsóknarlistans.

Andið eðlilega hefur alls fengið 6,468 gesti eftir 18 vikur.

Vargur er í 19. sæti sæti eftir 10 vikur. Alls hafa 6,299 nú séð myndina.

Lói er í 15. sæti eftir 22. sýningarhelgi en alls hafa 24,127 séð myndina hingað til. Myndin er komin fram úr „forvera“ sínum, Hetjur Valhallar: Þór, sem sömu aðilar sendu frá sér 2011, en sú mynd fékk alls 24.044 gesti.

Aðsókn á íslenskar myndir 2.-8. júlí 2018

VIKURMYNDAÐSÓKNHEILDAR-
AÐSÓKN
STAÐA HEILDAR-
AÐSÓKNAR Í SÍÐUSTU VIKU
4Adrift1,254 10,937 9,683
7Kona fer í stríð75513,923 13,168
23Lói - þú flýgur aldrei einn7624,127 24,048
18Andið eðlilega506,468 6,418
10Vargur76,299 6,292
(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR