Adrift Baltasars Kormáks var frumsýnd í íslenskum kvikmyndahúsum um síðustu helgi og er i öðru sæti aðsóknarlistans með rúmlega 4 þúsund gesti. Kona fer í stríð eftir Benedikt Erlingsson hefur nú fengið um 10,600 gesti eftir fjórðu sýningarhelgi.
2,060 sáu Adrift um helgina, en alls 4,149 með forsýningum.
10,593 hafa nú séð Kona fer í stríð eftir fjórar helgar. Myndin er í fjórða sæti aðsóknarlistans.
Vargur er í tíunda sæti sæti eftir 7 vikur. Alls hafa 6,212 nú séð myndina.
Víti í Vestmannaeyjum er í 15. sæti eftir 13. sýningarhelgi. Alls hefur hún fengið 35,432 gesti.
Lói er í 14. sæti eftir 20. sýningarhelgi en alls hafa 23,970 séð myndina hingað til.
Aðsókn á íslenskar myndir 11.-17. júní 2018
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDAR- AÐSÓKN | STAÐA HEILDAR- AÐSÓKNAR Í SÍÐUSTU VIKU |
---|---|---|---|---|
Ný | Adrift | 2,060 | 4,149 (með forsýningum) | - |
4 | Kona fer í stríð | - | 10,593 | - |
7 | Vargur | - | 6,212 | - |
20 | Lói - þú flýgur aldrei einn | - | 23,970 | - |
13 | Víti í Vestmannaeyjum | - | 35,432 | - |