spot_img

Aðsókn | Um tvö þúsund og fimm hundruð á „Kona fer í stríð“ opnunarhelgina

Kona fer í stríð eftir Benedikt Erlingsson var frumsýnd fyrir helgi og fékk rúmlega 2,500 gesti.

Myndin er í 4. sæti aðsóknarlistans. 1,103 komu um helgina en með forsýningum nemur aðsókn 2,516 gestum. Þetta er talsvert betri opnun en á fyrri mynd Benedikts, Hross í oss (2013), sem fékk alls 1,543 gesti á opnunarhelginni og endaði með 15.474 gesti. Líklegt má telja að gestir fari á þriðja tugþúsundið þegar upp er staðið, eða í námunda við Hjartastein eða Hrúta, sem báðar enduðu í kringum 23 þúsund gesti en áttu þó mun betri opnunarhelgar (sú fyrrnefnda 4.305 gesti og sú síðarnefnda 4.340).

Vargur er í tíunda sæti eftir 4 vikur. 5,303 hafa nú séð myndina.

Víti í Vestmannaeyjum er í 7. sæti eftir 10. sýningarhelgi. Alls hefur hún fengið 34,958 gesti.

Lói er í 13. sæti eftir 17. sýningarhelgi en alls hafa 23,811 séð myndina hingað til.

Andið eðlilega er í 14. sæti eftir 12. sýningarhelgi. Alls hafa 6,277 gestir séð hana.

Aðsókn á íslenskar myndir 21.-27. maí 2018

VIKURMYNDAÐSÓKNHEILDAR-
AÐSÓKN
STAÐA HEILDAR-
AÐSÓKNAR Í SÍÐUSTU VIKU
Kona fer í stríð1,103 (helgin)2,516 (með forsýningum)-
4Vargur-5,303-
10Víti í Vestmannaeyjum-34,958-
17Lói - þú flýgur aldrei einn-23,811-
12Andið eðlilega-6,277 -
(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR