Aðsókn | „Vargur“ í öðru sæti eftir frumsýningarhelgina

Vargur eftir Börk Sigþórsson var frumsýnd um helgina og er í öðru sæti aðsóknarlistans með tæplega tvö þúsund gesti.

Alls hafa 1,912 séð myndina að forsýningum meðtöldum, en 1,197 sáu hana um helgina.

Víti í Vestmannaeyjum er í 3. sæti og á 7. sýningarhelgi. Alls hafa 32,382 séð hana.

Lói er í 9. sæti eftir 14. sýningarhelgi en alls hafa 23,316 séð myndina hingað til.

Andið eðlilega er í 17. sæti eftir 9. sýningarhelgi. Alls hafa 6,087 gestir séð hana.

Aðsókn á íslenskar myndir 30. apríl-6. maí 2018

VIKURMYNDAÐSÓKNHEILDAR-
AÐSÓKN
STAÐA HEILDAR-
AÐSÓKNAR Í SÍÐUSTU VIKU
Vargur1,197 (helgin)1,912 (með forsýningum)-
7Víti í Vestmannaeyjum-32,382-
12Lói - þú flýgur aldrei einn- 23,316-
7Andið eðlilega-6,087-
(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR