Aðsókn | Um 30 þúsund á „Víti í Vestmannaeyjum“ eftir fimmtu helgi

Víti í Vestmannaeyjum eftir Braga Þór Hinriksson er áfram í þriðja sæti aðsóknarlistans eftir fimmtu sýningarhelgi og er heildarfjöldi áhorfenda kominn að 30 þúsund manns.

Í vikunni komu 1,664 gestir á Víti í Vestmannaeyjum og alls hafa því 29,642 séð hana eftir fimmtu sýningarhelgi.

Lói er í 15. sæti eftir 12. sýningarhelgi en hún fékk 272 gesti í vikunni. Alls hafa 22,769 séð myndina hingað til.

Andið eðlilega er í 16. sæti eftir 7. sýningarhelgi. 171 sáu myndina í vikunni. Alls hafa 5,889 gestir séð hana.

Svanurinn er í 27. sæti eftir 16. sýningarhelgi. Alls hafa 4,310 séð hana.

Aðsókn á íslenskar myndir 16-22. apríl 2018

VIKURMYNDAÐSÓKNHEILDAR-
AÐSÓKN
STAÐA HEILDAR-
AÐSÓKNAR Í SÍÐUSTU VIKU
5Víti í Vestmannaeyjum1,664 29,64227,978
12Lói - þú flýgur aldrei einn272 22,769 22,497
7Andið eðlilega171 5,889 5,718
16Svanurinn104,3104,300
(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR