Andlát | Guðrún Þ. Stephensen 1931-2018

Guðrún Þ. Stephen­sen leik­kona lést í dag, 87 ára að aldri. Hún fædd­ist í Reykja­vík 29. mars 1931 og var frumb­urður hjón­anna Dórót­heu Breiðfjörð og Þor­steins Ö. Stephen­sen.

Guðrún lauk prófi frá Leik­list­ar­skóla Þjóðleik­húss­ins árið 1954 og lék síðan í um tvo áratugi hjá Leikfélagi Reykjavíkur, en eftir það hjá Þjóðleikhúsinu.

Guðrún lék í nokkrum fjölda kvikmynda og sjónvarpsverka á ferli sínum. Má þar nefna Morðsögu (1977), Kristnihald undir jökli (1989), Benjamín dúfu (1995), Dansinn (1998) og Regínu (2001), auk sjónvarpsverkanna Gullna hliðið (1984), Fastir liðir eins og venjulega (1985) og 20/20 (2001).

Sjá nánar hér: Andlát: Guðrún Þ. Stephensen leikkona – mbl.is

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR