Mirgorod, í leit að vatnssopa eftir Einar Þór Gunnlaugsson hlaut verðlaun fyrir bestu leikstjórn heimildamyndar á Global India International Film Festival sem fram fór í mars síðastliðnum. Þetta eru fyrstu alþjóðlegu verðlaun myndarinnar og jafnframt fyrsta hátíðin sem myndin er sýnd á.
Mirgorod, í leit að vatnssopa er alfarið tekin upp í samnefndri borg í mið Úkraínu, en klipping, hljóð og myndvinnsla fór fram í Ísafjarðarbæ, meðal annars með framlagi þeirra Jóhannesar Jónssonar og Önundar Pálssonar.
Tvær sýningar voru á myndinni í Bíó Paradís í janúarlok sl., en hún er nú aðgengileg á VOD. Þróun hennar og undirbúningur var styrkt af Utanríkissráðuneytinu og Kvikmyndasjóði, en framleiðsla var studd af Mirgorod borg og framlögum og aðstoð einstaklinga í kvikmyndagerð. Fleiri kvikmyndahátíðir munu vera í farvatninu síðar á árinu og þá er gert ráð fyrir að myndin muni ferðast víða um A-Evrópu og Úkraínu í sumar.
„Lengi var óvíst hvort úr þessu verkefni yrði heimildamynd, eða í besta falli kynningarvideo um friðvænlegt svæði í stríðshrjáðu landi en vegir sjálfstæðrar kvikmyndagerðar geta verið órannsakanlegir,“ segir Einar Þór, en myndinni er lýst svo:
Í Úkraínu, um 300 km frá átakasvæðunum í austri, er smáborgin Mirgorod, heimasveit skáldsins Nikolaj Gogols. Kvikmyndagerðarmenn heimsækja borgina til að kynnast frægu vatni sem kennt er við hana og hvers vegna hún var einn helsti heilsubær fyrrum Sovétríkjanna. Á ferð þeirra hitta þeir heimamenn sem draga fram bæði staðreyndir sögunnar og andrúmsloft aldanna í stríði og friði. Á meðal viðmælenda eru flóttamenn frá átaksvæðunum í Donetsk, listamaður og borgarstjórinn sem rekur einstök gæði vatnsins í borginni sinni. Áhorfendur rekast líka á hóp fólks undirbúa útihátíð og reka nefið inn í leikhús. Myndin sýnir óþekktar hliðar á landi sem kennt er við stríð.
Frekari upplýsingar um myndina má nálgast hér.