Þáttaröðin Fangar verður sýnd á kapalstöðinni AMC í Bandaríkjunum, Bretlandi, Nýja Sjálandi og Ástralíu. Þetta kemur fram á Facebook síðu myndarinnar en gengið var frá samningum á ný yfirstaðinni Berlínarhátíð.
Þáttaröðin hefur verið fáanleg á Netflix, þar á meðal á Íslandi, en ekki verið í boði þar á enskumælandi markaði. AMC stöðin hefur boðið uppá mikið gæðaefni á undanförnum árum og má þar nefna Breaking Bad, Mad Men, The Walking Dead og fleiri þætti.