Svanurinn eftir Ásu Helgu Hjörleifsdóttur hefur nú fengið tæplega 2.500 gesti eftir þriðju sýningarhelgi.
Myndina sáu 521 í vikunni, en alls hafa 2,494 séð hana. Myndin er í 14. sæti aðsóknarlistans.
Undir trénu er í 20. sæti eftir 20. sýningarhelgi. Alls hafa 42,637 séð myndina.
Aðsókn á íslenskar myndir 15.-21. jan. 2018
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDAR- AÐSÓKN | STAÐA HEILDAR- AÐSÓKNAR Í SÍÐUSTU VIKU |
---|---|---|---|---|
3 | Svanurinn | 521 | 2,494 | 1,973 |
20 | Undir trénu | 49 | 42,637 | 42,588 |