Metsölumyndin „Óþekkti hermaðurinn“ sýnd á Íslandi

Rammi úr Óþekkta hermanninum.

Finnska stórmyndin Óþekkti hermaðurinn (Tuntematon sotilas) verður sýnd í Bíó Paradís frá föstudeginum. Myndin hefur slegið hressilega í gegn í heimalandinu og er nú sýnd víða um Norðurlönd. Júlíus Kemp og Ingvar Þórðarson eru meðframleiðendur myndarinnar, en leikstjórinn  Aku Louhimies verður viðstaddur hátíðarsýninguna annað kvöld og mun ræða við gesti að henni lokinni.

Myndin gerist á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar og sögusviðið er stríðið milli Finnlands og Sovétríkjanna 1941-1944. Þetta er fjölpersónusaga sem lýsir mörgum ólíkum einstaklingum innan tiltekinnar herdeildar, allt frá herkvaðningu til vopnahlés.

Óþekkti hermaðurinn er gerð í tilefni hátíðahalda Finna vegna 100 ára afmælis sjálfstæðis landsins. Kostnaður nemur um 850 milljónum króna, en finnski herinn lagði einnig til aðstöðu, tæki og tól til gerðar myndarinnar.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR