Rúmlega 30 þúsund gestir hafa nú sé Undir trénu eftir fjórðu sýningarhelgi. Myndin er áfram í öðru sæti aðsóknarlistans. Vetrarbræður fer mjög rólega af stað en hún var frumsýnd á RIFF um helgina.
Um helgina sáu 2,034 manns Undir trénu en alls 4,377 í vikunni. Heildarfjöldi gesta nemur nú 30,376 manns.
72 komu á Vetrarbræður um frumsýningarhelgina. Inní þeirri tölu eru ekki frumsýningargestir.
Ég man þig er nú komin með 47,276 gesti eftir 22 vikur í sýningum. Hjartasteinn hefur fengið alls 22,684 gesti eftir 38 vikur.
Aðsókn á íslenskar myndir 25. sept. til 1. okt. 2017
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDAR- AÐSÓKN | STAÐA HEILDAR- AÐSÓKNAR Í SÍÐUSTU VIKU |
---|---|---|---|---|
4 | Undir trénu | 4,377 | 30,376 | 25,999 |
Ný | Vetrarbræður | 72 | 72 | - |
22 | Ég man þig | 46 | 47,276 | 47,230 |
38 | Hjartasteinn | 10 | 22,671 | 22,661 |