spot_img
HeimFréttir"Vetrarbræður" vann til verðlauna í Rússlandi

„Vetrarbræður“ vann til verðlauna í Rússlandi

-

Vetrarbræður eftir Hlyn Pálmason vann til verðlauna á Arctic Open kvikmyndahátíðinni sem fór fram dagana 6. – 9. desember í borginni Arkhangelsk í Rússlandi.

Þetta er í annað sinn sem hátíðin er haldin en þrjár kvikmyndir eftir Dag Kára voru einnig sýndar í sérstökum fókus á leikstjórann. Þær myndir sem  urðu fyrir valinu voru; Nói Albinói, Fúsi og The Good Heart.

Vetrarbræður hlaut verðlaun fyrir bestu kvikmyndatökuna í flokknum „The Arctic As It Is“ en hún var í höndum Maria von Hausswolff. Maria hefur áður unnið með Hlyni en hún tók upp stuttmyndirnar hans; Seven Boats sem kom út árið 2014 og En malersem kom út árið 2014 og hefur hlotið mörg alþjóðleg verðlaun, þar á meðal verðlaun fyrir bestu stuttmyndina á RIFF, Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík.

Sjá nánar hér: Vetrarbræður vann til verðlauna á Arctic Open

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

ÞAÐ NÝJASTA Á KLAPPTRÉ

Fáðu nýjasta efnið á Klapptré í pósthólfið þitt tvisvar í viku, á mánudögum og fimmtudögum.

Þú getur afskráð þig hvenær sem er.

NÝJUSTU FÆRSLUR