New Europe Film Sales kynnir þrjár myndir íslenskra leikstjóra í Haugasundi dagana 19.-25. ágúst næstkomandi. Þetta eru Vetrarbræður eftir Hlyn Pálmason, Undir trénu eftir Hafstein Gunnar Sigurðsson og Héraðið eftir Grím Hákonarson sem fer í tökur eftir áramót og er væntanleg ári síðar.
Variety skýrir frá og ræðir við Jan Naszewski hjá New Europe Film Sales sem staðsett er í Varsjá í Póllandi. Hrútar Gríms Hákonarsonar var ein fyrsta mynd þeirra sem vakti athygli alþjóðlega.
„Norrænir kvikmyndagerðarmenn eru frábærir sagnamenn með góða kímnigáfu og frábæran smekk“, segir Naszewski, sem fyrr í sumar dvaldi hér á landi í stuttu fríi. „Við vinnum með upprennandi hæfileikafólki sem við styðjum við og beinum sérstaklega sjónum okkar að Norðurlöndunum.“
Sjá nánar hér: Haugesund: New Europe Film Sales Drives Into Nordic Films | Variety