Snjór og Salóme eftir Sigurð Anton Friðþjófsson er á rólegri siglingu eftir aðra sýningarhelgi. Hjartasteinn Guðmundar Arnars Guðmundssonar hefur nú fengið 21.322 gesti eftir fjórtándu sýningarhelgi.
135 sáu Snjó og Salóme í vikunni og alls hafa 897 séð myndina eftir aðra sýningarviku.
79 gestir sáu Hjartastein í vikunni. Heildartala gesta er nú 21,322.
Aðsókn á íslenskar myndir 10.-16. apríl 2017
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDAR- AÐSÓKN | STAÐA HEILDAR- AÐSÓKNAR Í SÍÐUSTU VIKU |
---|---|---|---|---|
2 | Snjór og Salóme | 135 | 897 | 762 |
14 | Hjartasteinn | 79 | 21,322 | 21,243 |