Hjartasteinn Guðmundar Arnars Guðmundssonar var frumsýnd á föstudag og fékk góða aðsókn um helgina.
Alls sáu 3,385 gestir myndina um helgina, en með forsýningu hafa 4,305 séð hana. Þetta er ívið meiri helgaraðsókn en á opnunarhelgi Hrúta í maí 2015. Ekki er því ólíklegt að Hjartasteinn endi með vel á þriðja tug þúsunda gesta í bíó, ef miðað er við svipaðar opnunarhelgar íslenskra mynda (þó ekkert sé gefið í þeim efnum).
Tölur fyrir A Reykjavík Porno, sem einnig var frumsýnd um helgina, liggja ekki fyrir að þessu sinni.
Grimmd og Eiðurinn eru nú sýndar í Bíó Paradís. Heildaraðsókn á þá fyrrnefndu nemur nú 19,618 gestum eftir 13 vikur í sýningum, en á þá síðarnefndu 47,022 gestum eftir 19 vikur.
Aðsókn á íslenskar myndir 9.-15. janúar 2017
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDAR- AÐSÓKN | STAÐA HEILDAR- AÐSÓKNAR Í SÍÐUSTU VIKU |
---|---|---|---|---|
Ný | Hjartasteinn | 3,385 (helgin) | 4,305 | - |
19 | Eiðurinn | - | 47,022 | - |
13 | Grimmd | - | 19,618 | - |