Grimmd Antons Sigurðssonar er í tíunda sæti aðsóknarlista FRÍSK eftir fjórðu sýningarhelgi og hefur fengið tæplega fimmtán þúsund gesti. Eiðurinn Baltasars Kormáks nálgast 40 þúsund gesti eftir tíu vikur. Tvær nýjar heimildamyndir, Aumingja Ísland og Svarta gengið voru frumsýndar um helgina.
289 manns sáu Grimmd um helgina en alls 3,388 í vikunni. Heildargestafjöldi nemur því nú 14,822 gestum.
222 sáu heimildamynd Kára Schram, Svarta gengið, sem frumsýnd var í Bíó Paradís um helgina.
Önnur heimildamynd, Aumingja Ísland eftir Ara Alexander, var einnig frumsýnd í Bíó Paradís um helgina. Myndin hefur fengið 223 gesti.
Eiðurinn Baltasars Kormáks er í 13. sæti aðsóknarlistans. Alls sáu hana 234 manns yfir vikuna. Samtals hafa því 39,086 séð myndina eftir 10 vikur.
Child Eater Erlings Óttars Thoroddsen er sýnd í Bíó Paradís. 94 sáu myndina í vikunni og heildarfjöldi gesta er 504 eftir þriðju sýningarhelgi.
1,900 gestir hafa nú séð Innsæi eftir Hrund Gunnsteinsdóttur og Kristinu Ólafsdóttur eftir fimmtu sýningarhelgi.
606 hafa séð Ransacked eftir Pétur Einarsson að lokinni fjórðu sýningarhelgi.
Aðsókn á íslenskar myndir 7.-13. nóvember 2016
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDARAÐSÓKN |
---|---|---|---|
4 | Grimmd | 3,388 | 14,822 |
10 | Eiðurinn | 234 | 39,086 |
Ný | Aumingja Ísland | 223 | 223 |
Ný | Svarta gengið | 222 | 222 |
5 | Innsæi | 207 | 1,900 |
3 | Child Eater | 94 | 504 |
5 | Ransacked | 28 | 606 |