Félag kvikmyndagerðarmanna heldur uppá 50 ára afmælið

Hrafnhildur Gunnarsdóttir formaður FK býður gesti velkomna.
Hrafnhildur Gunnarsdóttir formaður FK býður gesti velkomna.

Haldið var upp á 50 ára afmæli Félags kvikmyndagerðarmanna (FK) í Ægisgarði í fyrrakvöld. Margt var um manninn og borgarstjórinn í Reykjavík ávarpaði afmælisfögnuðinn.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri óskaði FK til hamingju með afmælið og sagði gestum frá áformum borgaryfirvalda út í Gufunesi þar sem áætlanir eru uppi um að hlúa að nýsköpun og frumkvöðlastarfi í kvikmyndageiranum.

Sex félögum var í gær veitt heiðursfélaganafnbót á 50 ára afmæli félagsins. Það voru þau: Gísli Sigurgeirsson, Gunnar Baldursson, Ingibjörg Briem, Magnús Magnússon, Valdís Óskarsdóttir og Þorsteinn Helgason. Þau hljóta heiðursfélagatitilinn fyrir vel unnin störf í sjónvarps- og kvikmyndagerð.

Heiðursfélaganafnbótin er sæmdarheiti sem hlotnast fyrir mikilsvert framlag til eflingar félaginu og/eða kvikmyndagerðarmönnum og konum sem eiga að baki farsælan starfsferil sem kvikmyndagerðarmenn. Valdís Óskarsdóttir og Ingibjörg Briem eru fyrstu konurnar sem hljóta þessa nafnbót.

(Ljósmyndir Stefanía Thors og Anna Þóra Steinþórsdóttir).

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR