Teiknimyndin Lói – þú flýgur aldrei einn hlaut rúmar 37 milljónir í styrk frá Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðnum á dögunum. Verkefnið, sem er byggt á handriti Friðriks Erlingssonar og í leikstjórn Árna Ólafs Ásgeirssonar og Gunnars Karlssonar, verður frumsýnt 2017. GunHil framleiðir.
Lói – þú flýgur aldrei einn segir af lóu unga sem er ófleygur að hausti þegar farfuglarnir halda suður á bóginn. Hann verður að lifa af veturinn til að geta bjargað ástinni sinni frá því að lenda í klóm fálkans næsta vor.
Myndin verður ein allra dýrasta íslenska myndin sem gerð hefur verið, en framleiðslukostnaður hennar nemur rúmum milljarði króna.
Kvikmyndamiðstöð Íslands hefur þegar veitt verkinu 90 milljón króna vilyrði auk þess sem RÚV hefur tryggt sér sýningarréttinn. Myndin er framleidd í samvinnu við belgíska myndbrellufyrirtækið Cyborn og þaðan koma rúmar 400 milljónir króna til verkefnisins.
Þá hefur Arri World Sales forselt myndina til yfir 30 landa.