Greining | Risastór Íslandsopnun á „Everest“

Ingvar E. Sigurðsson leikur rússneska fjallgöngugarpinn Anatoli Boukreev í myndinni.
Ingvar E. Sigurðsson leikur rússneska fjallgöngugarpinn Anatoli Boukreev í Everest Baltasars Kormáks.

Everest Baltasars Kormáks hitti svo sannarlega í mark hjá íslenskum bíógestum yfir frumsýningarhelgina með aðsókn uppá 14.254 manns með forsýningum. Þetta er með stærri opnunarhelgum síðan mælingar hófust.

Myndin er langefst á aðsóknarlistanum eftir helgina, en þá komu 11.393 gestir (14.254 með forsýningum). Þetta er stærsta opnun Hollywoodmyndar Baltasars hér á landi en þó á Mýrin enn vinninginn séu allar hans myndir taldar með, hún fékk 15.796 gesti á opnunarhelginni 2006.

Hrútar Gríms Hákonarsonar er enn í sýningum eftir 17 vikur. Heildaraðsókn er komin í 20.702 gesti.

Heimildamynd Bergs Bernburg og Friðriks Þórs Friðrikssonar, Sjóndeildarhringur, er sýnd í Bíó Paradís. Eftir aðra viku hefur myndin fengið alls 468 gesti.

Fúsi Dags Kára er komin með alls 12.690 gesti eftir 26 vikur í sýningum.

Aðsókn á íslenskar myndir vikuna 14.-20. september 2015:

VIKURMYNDAÐSÓKNHEILDARAÐSÓKN
Everest11.393 (helgin)14.254 (með forsýningum)
17Hrútar22520.702
2Sjóndeildarhringur155468
26Fúsi8012.690
(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR